Selfossi 1. júí 2023
Umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið
B.t. Guðlaugs Þór þórðarsonar ráðherra
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er að skoða framkvæmd laga nr. 60/2013 um náttúrvernd, sérstaklega framkvæmdina er varðar XI kafla laganna um innflutning og dreifingu lifandi framandi lífvera. Þar virðist vera pottur brotinn.
Í 63. gr. laganna kemur skýrt fram í 1. mgr. að óheimilt sé að flytja inn eða dreifa lifandi framandi tegundum nema með leyfi og að með umsókn um slíkt leyfi skuli m.a. fylgja “áhættumat”. Í 2. mgr. er undanþága sem nær til tegunda sem þá voru notaðar hér á landi, m.a. í landgræðslu og skógrækt. Þessi undanþága er þó bundin við „innflutning“ tegundanna, en nær ekki til dreifingarinnar, sbr.
orðalag greinarinnar. Dreifing margra tegunda virðist þó vera í fullum gangi án leyfa, sbr. t.d. alaskalúpínu.
Sjá allt bréfið hér.
Selfossi 6. júní 2023
Vísað er til viðtals við Þröst Eysteinsson, skógræktarstjóra, á vísir.is 23. janúar 2023 þar sem hann boðar „nýja útfluttningsgrein“ með skógrækt erlendra aðila á Íslandi.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Sjá svar Þrastar Eysteinssonar, skógræktarstjóra, hér (PDF skjal)
Selfossi 23. maí 2023
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins.
…
Í Morgunblaðinu 29. mars sl. var sagt frá samstarfsverkefni skógræktarfólks í Dalabyggð sem snýst um að rækta aspir og selja þær til skógræktarfólks eða planta þeim í eigin skógrækt. Verkefnið fékk styrk úr uppbyggingarsjóði Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi. Í fréttinni kom fram að fyrirhugað væri að gróðursetja aspirnar við hringveginn sem er aðalvegurinn í sveitarfélaginu. VÍN varar við þessari fyrirhuguðu framkvæmd og hvetur sveitarstjórnina til að beita skipulagsheimildum sínum til að koma í veg fyrir neikvæð áhrif framkvæmdarinnar. Ræktun stórvaxinna aspa meðfram vegum byrgir útsýni sem er dýrmætt, sérstaklega ferðafólki, í þessu tilviki er spurning um sýn yfir Breiðafjörð og inn dalina.
…
Enn fremur varar VÍN við fyrirhugaðri skógrækt Minjaverndar í Ólafsdal. Skógrækt í dalnum, sama hvað trjátegundir verða notaðar, hún hlýtur þegar fram líða stundir að ógna þessum einstöku menningarminjum og því hefðbundna búsetulandslagi sem er aðall staðarins.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 9. maí 2023
Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) sem eru samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins hafa kynnt sér áform um minjavernd í Ólafsdal í Dalabyggð.
Dalurinn, sem er sérstæð heild, afmarkast á þrjá vegu af 400–500 m háum fjöllum en opnast til norðurs út í Gilsfjörð. Í dalnum eru miklar og sérstæðar minjar frá tíma Bændaskólans í Ólafsdal, sem starfræktur var frá 1880 til 1907, en einnig frá landnámsöld því innarlega í dalnum er skáli sem nýlega hefur verið rannsakaður. Fleiri minjar er þar einnig að finna.
Sjá alla ályktunina hér (PDF skjal)
Selfossi 4. maí 2023
Vinum íslenskrar náttúru bárust nýlega upplýsingar um að hafnar væru framkvæmdir á vegum Minjaverndar, félags í eigu ríkisins (38,27%), Reykjavíkurborgar (38,27%) og Minja, sjálfseignarstofnunar (23,46%), til að undirbúa skógrækt í Ólafsdal í Dölum. Verkefnið er langt komið, búið að girða af land, breyta deiliskipulagi og fá vilyrði fyrir framkvæmdaleyfi. Þetta hefur gerst þrátt fyrir harðorð mótmæli Ólafsdalsfélagsins, Fornleifastofnunar Íslands, Landbúnaðarháskóla Íslands og Minjastofnunar Íslands, sem öll hafa varað við óafturkræfum verulegum neikvæðum áhrifum á menningarminjar, sögu og ásýnd svæðisins. Hvatinn að þessu skógræktarverkefni er mjög óskýr og óskiljanlegur, sérstaklega í ljósi þess hversu alvarlegar afleiðingarnar verða að mati þeirra sem vilja varðveita Ólafsdal með náttúru staðarins, menningarminjar og sögu að leiðarljósi (sjá umsagnir fyrrnefndra aðila). VÍN er sammála þessum samtökum sem hafa varað við þessum framkvæmdum og mótmælt þeim og skilur ekki afstöðu Skipulagsstofnunar til málsins.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 26. apríl 2023
Eins og ykkur er kunnugt um hefur staðgengill skógræktarstjóra iðkað um áratuga skeið hatrammar ófaglegar ásakanir á hendur núverandi forsvarsmanna VÍN, Svein Runólfsson, Andrés Arnalds og Jón Gunnar Ottósson.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 14. apríl 2023
Vísað er til bréfs frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis til Jóns Gunnars Ottóssonar varaformanns náttúruverndarfélagsins VÍN þar sem óskað er eftir umsögn um frumvarp til laga um Land og skóg, 858. mál.
Drög að framangreindu frumvarpi voru áður til umsagnar í samráðsgátt stjórnvalda og veitti VÍN umsögn um drögin, sjá meðfylgjandi bréf dags. 31. janúar 2023.
VÍN fagnar framkomnu frumvarpi um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar og mælir eindregið með samþykkt þess. VÍN vill þó koma eftirfarandi ábendingum á framfæri, sem miða að því að styrkja frumvarpið.
Sjá alla umsögnina hér (PDF skjal)
Selfossi 14. apríl 2023
Á undanförnum misserum hafa verið sett fram stórtæk áform um að auka skógrækt hér á landi. Þessum áformum er það yfirleitt sameiginlegt að þau eru sett fram sem aðgerðir gegn loftslagsbreytingum. Fyrir liggur jafnvel áhugi og vilji erlendra aðila til að hefja stórfellda skógrækt hérlendis í þeim tilgangi. Með nútíma vélvæðingu við jarðvinnslu og plöntun er víða hægt að ná miklum afköstum í skógrækt. Með skógrækt er hægt að byggja upp kvóta sem verður
söluvara sem samsvarar því kolefni sem binst við ræktun skógarins. Fyrirtæki með neikvætt kolefnisspor virðast því geta keypt sér nokkurs konar aflátsbréf frá þeim aðilum sem hafa jákæða stöðu í því uppgjöri. Því er að mörgu að hyggja i þessum efnum fyrir sveitarstjórnir sem fara með skipulagsvald hver á sínu svæði.
Því verður ekki á móti mælt að skógrækt hefur margþáttuð áhrif á umhverfið. Vafalaust sýnist sitt hverjum hvort þau áhrif séu jákvæð eða neikvæð. Mikilvægt er að átta sig á að ræktun skóga …..
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 13. apríl 2023
Félagið Vinir íslenskrar náttúru (VÍN) er samtök vísinda- og fræðafólks, náttúruverndarfólks og fulltrúa helstu náttúruverndarsamtaka landsins (sbr. meðfylgjandi skrá yfir stofnfélaga). Félagið var formlega stofnað á sl. ári en hópurinn hefur starfað saman lengur. Hlekkur á vef félagsins er: https://dev.natturuvinir.is/ Tilgangur félagsins er að fjalla um náttúruverndarmál líðandi stundar. Ísland er virkur þátttakandi í alþjóðlegu samstarfi um náttúruvernd, vernd líffræðilegrar fjölbreytni, landslags og náttúruauðlinda. Skyldur þjóðarinnar á þessu sviði eru margvíslegar, sem endurspeglast í íslenskri löggjöf. Starfsemi VÍN tekur mið af þessum alþjóðlegu skuldbindingum og íslenskri löggjöf um náttúruverndarmál í umfjöllun sinni. VÍN leggur áherslu á að veita aðgang að faglegu og vönduðu efni sem byggt er á vísindalegum grunni og kynna þau náttúruverndarmál sem efst eru á baugi hverju sinni.
Sjá allt bréfið hér (PDF skjal)
Selfossi 31 janúar 2023
Vísað er til máls. nr. 8/2023 í samráðsgátt stjórnvalda um drög að frumvarpi til laga um Land og skóg. Með frumvarpinu er mælt fyrir um sameiningu Landgræðslunnar og Skógræktarinnar í nýrri stofnun undir heitinu Land og skógar.
Eftirfarandi umsögn er gerð í nafni nýstofnaðs félags um náttúruvernd ,,Vinir íslenskrar náttúru“ hér eftir VÍN, sjá nánar www.natturuvinir.is .
Sjá alla umsögnina hér (Samráðsgátt stjórnvalda)